fimmtudagur, mars 01, 2007

Alveg komin með nóg...

... af þessum veikindum. Já ég er búin að vera heima alla vikuna og er alveg komin með ógeð. En sem betur fer hefur EK ekkert veikst 7,9,13. Maður hefur ekki mikið að gera svona hangandi heima, hef aðeins lært, legið í rúminu og látið mér leiðast. Maður nær ekki einusinni að fylgjast með því sem gerist í skattaheiminum, úff, þá er það orðið slæmt, haha. Ætlaði áðan að kíkja inn á vefinn og ath hvort það væri búið að opna fyrir framtölin og viti menn, allt breytt. Maður þarf kanski bara kenslu á þennan nyja sameginlega vef Skattsinns.
En ég er aðeins að hressast, hóstinn aðeins að minka og er hitalaus, ætla sammt að halda mér inni fram yfir helgi.
Bara fátt annað að frétta, lítið sem gerist þegar maður er einn að horfa út í loftið allan daginn og veltir fyrir sér hvort loftið hafi verið málað með pensli eða rúllu og hvort það hafi verið rúllað til hægri eða vinstri. Já eins og þið heyri þá á ég mér mjög mikið líf þessa dagana. Ætla að halda áfram að velta þessum málingaraðferðum fyrir mér.

1 ummæli:

Eva sagði...

Hvernig er heilsan í dag og hvernig hefur gengið með lærdóminn? Þú fékkst amk smá tilbreytingu eftir 8 á fimmtudagskvöldinu ;)