föstudagur, mars 09, 2007

Allir að skila fyrir 21.mars!!!

Já þá er skattadótið byrjað og skemmtilegur tími framundan - eða þannig. Allt búið að ganga ansi rólega fyrir sig síðustu daga, ætli þetta sé ekki bara lognið á undan storminum. Eða eru Íslandingar farnir að muna eftir þessu loksins. Og það eru öruglega allir landsmenn sem eiga hlutabréf alveg himinlifandi yfir þessu litla krúttlega nyja RSK 3.19 hahahaha, þarna var ég sko fyndin, eða ekki. Í dag eyddi ég 7 klukkutímum á óþægilegum stól á Grand hótel, já á mjög svo fræðandi námskeiði / fyrirlestrum. Já alltaf gaman í skattinum.
Annars bara fínasta að frétta, ég reyndar var bara veik í heila viku í þar síðustu viku og svo er EK, litla krúttið mitt, búinn að vera lasinn í 2 daga en er nú allur að hressast, vona ég allavega. Hann var svo glaður að fá hana systur sína heim og missti eflaust nokkrar hitagráður við það. Annars bara róleg helgi framundan, vona allavega að hún verði mjög róleg, engar óvenjulegar uppá komur takk.

1 ummæli:

Eva sagði...

Já, alveg himinlifandi yfir þessu hlutabréfa %%&/(%&/& :p

En gott að heilsan og heimilislífið klikkar ekki :)