föstudagur, mars 16, 2007

Helgi

Já það er alltaf gott að fá helgarfrí. Nema hvað ég þarf að læra, jaja svona er það bara. Ætla mér að reyna ða ná öllum 3 prófunum í byrjun mai. Svo ætla ég að reyna að taka restina af bókfærsluni í kvöldskóla eða eithvað, þetta er bara ekki að síast inn í minn litla heila.
Í dag fór Magga í vinnuni til Florida og ég bara öfunda hana alveg rosalega mikið. Væri alveg til í að vera að lenda þarna í Orlando núna, ahhh sól og blíða og allar búðirnar. Slefff
Já annars er fátt að frétta, ég er búin að skila öllum framtölum og þá er bara að bíða eftir álagninuni. Þar sem við erum að samskatta núna gátum við ekki fengið bráðabyrðaútreikning, sniff sniff, búhú.
Svo er það þessi snjór sem áhvað að falla af himnum ofan, skil ekkert í þessu, var viskilega að vona að vorið ætlaði að byrja snemma. En maður ætti kanski að nota tækifærið að fara upp á þak að taka þetta geitungabú sem er þar, á meðan allt er frosið og dautt. Einhver sem byður sig fram???

3 ummæli:

Eva sagði...

Ég býð fram stuðning minn en ekki hjálp :p er ekki hrifin af flugum!

Nafnlaus sagði...

Ég er ekki heldur hrifin af flugum en ég skal horfa á ;) ! Heldur ekkert gott fyrir mig að vera príla upp á þak he he

Nafnlaus sagði...

Tja ég held ég láti það vera því ég er viss um að þær hætti að vera frosnar þegar þær heyra í mér og ráðast á mig JAKK