miðvikudagur, mars 28, 2007

Sól sól skín á mig...

Já í morgun vöknuðum við alveg 40 mín á undan vekjaraklukkuni og það þyðir að það sé að koma vor og sumar, þurftum reyndar aðeins að skafa bílinn en það var sól úti.
Fór á æfingu í gær með Höllu og Víði og ég er bara ekki frá því að ég sé komin með slatta strengi, ái. Svo þarf ég að sökkva mér aðeins niður í lærdóm ef ég ætla ekki að vera að læra alla páskana. Svo á morgun verður hún Ísold 15 ára, hvorki meira né minna, þetta er alveg rosalegt hvað þessir krakkar stækka hratt, ég ég bara ekki neitt, hahaha.
Annars er nú bara mjög fátt að frétta, nema notla að ég fékk 9 fyrir norsku ritgerðina mína um daginn, ógeðslega stolt. Og núna er ég að reyna að klára hina bókina á methraða svo ég geti klárað hina ritgerðina. Ætla svo að plata Evu til að hjálpa mér smá á læra undir hin 2 prófin þegar hún er búin í sínum. Pæliði bara mánuður í próf og svo kemur sumar, jeiii (Bjartsýn)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

kvitt kvitt elskan :)