Já núna er komið að prófunum skemmtilegu. Ég er í fyrsta prófinu í dag, næsta á morgun og síðasta á miðvikudaginn. Mikið verður gott þegar þetta er búið. Ég er alveg komin með upp í háls af þessum blessuðu vísitölum og ætla ða vona að það verði ekki mörg þannig dæmi í prófinu á eftir því þá gubba ég, haha. Held ég bara geti ekki lært mikið meira fyrir þetta próf, ætla renna yfir 2 formúlur á eftir og reyna að finna leið til að muna þær, algert gullfiskaminni hér á bæ. Svo er það bara að hella sér í bókfærsluna, Eva kemur í kvöld að hjálpa mér aðeins. Vona bara að hún finni takkan sem þarf að íta á til að festa þetta inní minn litla haus.
Annars er bara lítið að frétta, búið að vera fínasta veður undanfarið og maður er búin að taka góða syrpu í garðinum. Núna vantar mig bara kerru, á einhver svoleiðis, þarf að losa mig við ymislegt úr garðinum.
fimmtudagur, maí 03, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
ég vona líka að mér takist að finna takkann! Vonandi gekk þér vel í prófinu! :D
Skrifa ummæli