Já það má eginlega segja að það sé opinbert, ég sagði upp vinnu minni hjá RSK í dag, þvílíkur léttir. Ég veit ekki enþá hvenar mér verður sleppt, en það verður vonandi fljótlega. Ég er komin með aðra vinnu, hjá Fjárvaki sem er dótturfélag Icelandair og verð ég þar í bókhaldinu.
Já þeta gerðist ansi hratt og bíð ég núna bara spennt eftir að heyra hvenar ég get hætt hérna og byrjað á nyjum stað.
Annars bara allt gott að frétta, er að byrja að lesa undir próf sem eru í næstu og þarnæstu viku. Og þá tekur nú við brúðkaupsundirbúningur svona að alvöru. Það er komið sumar i huga minn og reyni ég að draga sólina fram með að klæðast sumarleguum og léttum fötum. Ég kvarta svosem ekki, það er ekki jafn kallt alltaf þótt sólin láti lítið sjá sig.
Jæja svo er það bara ræktin eftir vinnu, versla og svo kemur Ísold, verðum með smá grill á morgun og vona bara að helgin verði róleg og afslöppuð hjá öllum.
föstudagur, apríl 27, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Greinilega nóg að gera hjá þér, bara gaman. Til hamingju aftur með nýju vinnuna, frábært :)
Stórt knús frá Kananda.
Kananda!! hvar er það aftur, rétt hjá Rúanda haha. KANADA átti það að vera.
Til hamingju með nýju vinnuna Karitas :D alveg frábært og kominn tími til!
Skrifa ummæli