Já sumarið virðist byrja vel, þrátt fyrir sorglegan síðasta vetrardag. Skelfilegur stórbrunin í miðbænum og hvað þá að allt fari á flot eftirá.
En allavega í dag þá byrjaði ég á því að setja sumardekkin undir bílin, gékk alveg mjög vel, nema að rærnar voru svo fastar að ég varð að fá Einar til að hjálpa mér að losa. Svo fór ég aðeins á æfingu, tók bara nokkuð vel á því. Kalli og Gugga kíktu aðeins og voru aðeins að segja okkur frá einhverju æðislegu grilli. Við EK fórum að kaupa sumargjöfina hanns, en hann fékk fótboltamörk, Spidermann húfu og hanska og er hinn ánægðasti. Brunuðum svo á BSÍ og hittum þar Einar, Þóru, Obbu og Ísold. En hún Obba á afmæli í dag, til haminju með það.
EK sofnaði svo í bílnum á leiðini heim, við Einar settum saman fótboltamörkin. Síðan kom Kalli aftur og þá búinn að kaupa handa okkur þetta frábæra gasgrill. Takk kærlega fyrir okkur. Við Einar fórum þá í að byggja saman grillið, var nú ekkert erfitt en tók alveg sinn tíma
. En þetta var alveg æðislega gaman.

. En þetta var alveg æðislega gaman.
3 ummæli:
Gleðilegt sumar og til hamingju með þetta glæsilega grill. Verst að við getum ekki skroppið í grillmat til ykkar um helgina;) Það bíður til næsta sumars:)
Gleðilegt sumar Karitas og til lukku með "skrímslið" nei ég meina grillið ;) hvenær er svo matarboðið?
Til hamingju með grillið og gleðilegt sumar :)
Hlakka mikið til að föndra á eftir hehe:)
Skrifa ummæli