þriðjudagur, maí 29, 2007

Sumar og sól

já vonandi er sumarið komið hérna á ísjakanum. Allavega er búið að vera fínasta veður um helgina og sólin skyn hér inn um gluggan í þessum skrifuðu orðum. Um helgina passaði ég gríslingana hennar Þóru, hjálpaði til í útskriftarveislu, fór upp í bústað til ömmu og afa á Hellu. EK fékk nú heldurbetur útrás þar með henni Tunni (hundur). Komum við hjá Önnu frænku og Gulla á Selfossi. Og í gær var barnaafmæli hjá honum Andra Þór, en það var grímubúningaafmæli og gáfum við EK nyja spidermann gallan, gráa og er hann ekkert smá ánægður og fæst varla úr honum.
Styttist í Frakklandsferðina hanns Einars og við EK verðum bara 2 á heimili í nokkra daga, verður skrítið það. Eva reddarinn minn ætlar nú eithvað að hjála mér þegar ég er á æfingum, því barnagæslan er lokuð á þeim tíma. Svo eru margir að þvælast erlendis núna, við verðum með Andra Þór hjá okkur á meðan Kiddi og Krissa verða á Spáni og ma og Hermann að fara út líka. Efast um að það verði nein utanlandsferð á mig fyrr en á næsta ári en það er svosem í lagi, vona bara að það verði þolanlegt veður hérna heima.
Svo styttist óðum í brúðkaupið og er nú flest frágengið en flest svona smotteri eftir, tekur allt tíma, en það er rúmur mánuður til stefnu. ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.

1 ummæli:

Eva sagði...

Ég er svo æðisleg ég veit ;) nei þetta var nú bara smá grín. En tek undir það með þér að tíminn líður alveg hrikalega hratt!!!