

Já þá er helgin að verða búin. Fórum í gær með RSK að Indriðastöðum í Skorradal. Okkur var skipt í 2 lið og liðið sem ég var í heitir Skrattinn og Einar var í liði Svikara, já þetta er hugmyndaflug skattstarfsmanna. Fórum í sveitaleiki og var það bara voða gaman og svo var farið á 4hjól, Einar keyrði nú mest ég átti bara svo erfitt með styrið ansi stíft og þungt. Svo festum við okkur einusinni sem var bara fyndið. Fengum síðan voðaæega góðann mat og svo var bara slappað af og spilað púl og fótboltaspil. Rúlluðum í bæinn aftur og við Einar kíktum í kennaraparty og eldaði ég kvöldið á smá trampolínhoppi og svo röltum við heim. Já ég segi bara að þau sem mistu af þessari ferð misstu af miklu.
Annars er dagurinn í dag bara búinn að vera rólegur, krakkarnir ekki enn komin heim og erum við bara að bíða eftir þeim.
Annars er dagurinn í dag bara búinn að vera rólegur, krakkarnir ekki enn komin heim og erum við bara að bíða eftir þeim.



1 ummæli:
Það er ekkert smá :p
Skrifa ummæli