sunnudagur, júní 10, 2007

sunnudagur

Já helgin er að klárast, þessar helgar klárast allt of fljótt. Var nú ekki eins gott verður í gær og ég hafði vonast eftir en við EK náðum nú allavega að slá garðinn, drifum í því á meðan það var þurrt, en svo bara byrjaði ekkert að rigna eins og himininn var þungur. Vorum bara róleg fyrir utan það og EK alveg ofur pirraður, löbbuðum aðeisn í búðina og sáum litla rellu á flugi og EK spurði hvort pabbi væri í þessari, hihi. Síðan sofnaði greyjið bara á eldhúsborðinu.
Sé ekki betur en að það verði gott veður í dag og spurning um að skella sér einhvert í labbitúr og kanski kíkja á elliðavatnið. Kemur í ljós hvað við gerum.
En ég kláraði að brjóta saman allar servietturnar í gær, mikið er gott að það sé búið. Ég held að þetta sé bara allt að koma og ég bara vona að ég sé ekki að gleyma neinu.
EN ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.

1 ummæli:

Eva sagði...

Það eru bara 4 vikur í brúðkaupið.... úff hvað tíminn er fljótur að líða!