fimmtudagur, júní 21, 2007

Lasin "tvíburamamma"

Já það fjölgaði um eitt barn á heimilinu sunnudagskvöldið síðasta. Andri Þór er búinn að vera hjá okkur síðan og er rosa fjör hjá strákunum. Ætlaði með þá í sportland í dag á meðan ég ætlaði að taka á því en nei, vaknaði með hálsbólgu, fór í vinnuna í 2 tíma, kom heim og svaf í nokkra tíma og er svona lala núna. Vona að ég nái þessu úr mér strax, er ekki að nenna eða hafa tíma fyrir einhver veikindi. Típíst, allar uppí vinnu búnar að vera veikar og ég hélt ég væri sloppin en NEI.
Núna eru bara 16 dagar í brúðkaup og engin má vera veikur, byrja í sumarfríi eftir næstu viku og verð í nokkra daga. Verður sammt ekki langt sumarfrí í ár, þar sem ég á ekki inni neitt frí. Svona er að byrja í nytti vinnu á þessum tíma ársinns, ætla sammt ekkert að kvarta. Tek bara út gott frí næsta sumar áður en hann Elías Karl okkar byrjar í skóla, ómg, tíminn líður allt of hratt.

1 ummæli:

Eva sagði...

Já, líður ekkert smá hratt!!!