

Já ég fékk að upplifa gæsun í gær, og var það bara alls ekkert slæmt. Hingað kom leðurklæddur maður og bauð mér á rúntinn. EK greyið leist ekkert á þetta, mamman bara klædd upp í leður og svo farið í burtu á mótórhjóli. Eins bílhrædd og ég er þá var þessi ferð algert hugrekki hér á bæ, en bara mjög gaman þegar ég var farin að slappa af á hjólinu, mér stóð nú ekki alveg á sama þegar hann fór að gefa í og fara frammúr bílum og hvað þá að keyra á milli bíla. En ég er enþá lifandi þannig að þetta er í góðu lagi. Keyrt var með mig upp að Sandskeiði og Eiður (leiðurklæddi maðurinn) tilkynnti mér að ég fóri í fallhlífastökk, en nei ég fór í svifflug. Hef aldrei prófað svona áður og fannst mér ansi athygglisvert að vera dregin á loft af annari vél og svo bara sleppt. Kom mér á óvart hvað það var rólegt eithvað þarna þegar við vorum laus við hina vélina. Svo svifum við bara í einhverja stund þarna. Við lendingu var tekið á móti með kanínueyru, Ms. Goose borða, freyðivín og súkkulaðihúðuð jarðaber. Brunuðum að skila af okkur dóti og svo var farið í ríkið, ég átti þar að biðja einhvern að giftast mér þar sem það væri verið að gæsa mig fyrir fram. Sá fyrsti var alveg til í það en hann átti ekki demant, en hann átti klósett sem ég gat fengið að nota. Síðan var mér rétt innkaupakarfa og debetkort og átti að biðja kassastarfsmanninn að giftast mér. Greyjið strákurinn fór alveg í kerfi og hefur verið að drífa sig að afgreiða svo við færum út. Svo var það nú svo gaman að hann var ekki að skoða skilríkin mín og horfði síðan á kortið og segir, ert þetta ekki þú?? hahaha ég var sko með kortið hennar Höllu. Náðum í Krissu og tengdapabbi segir að það þurfi að taka mynd af mér síðasta sinn sem hreinamey, hahaha Ek kom öruglega með storkinum. Fórum eithvða í bæinn og þar var nú mesta "píningin" fékk 2 kókosbollur og gos og átti að borða og drekka, ég var nú ekki alveg að standa mig best í þeirri deild. Hitti líka stegg í bænum og var hann klæddur í svo fallegann kjól. Fórum í magadans sem var mjög gaman, hefði viljað vera aðeins meira í áttina að vera edrú. Fórum heim til Höllu í smá rólegheit og fór þar fram hjálpartækjakynning. Tókum okkur líka aðeins til þarna áður en haldið var á tapasbarinn þar sem við fengum mjög fínan og flottan mat (komst reyndar að því að ég borða ekki kengúru) Helga Rún kom og slóst í hópinn þar. Fórum svo á glaumbar og ég fékk að taka kanínuhopp hringum barinn, voða fjör. Hittum líka "litla" frænda hann Steinþór. Ég var síðan orðin ansi þreytt kl 1 og rölti Laugaveginn með Þóru og Guðjón sótti okkur við Hlemm og mér keyrt heim. Ég held að ég sé ekki að gleyma neinu, en þetta var alveg frábær dagur.
TAKK KÆRLEGA FYRIR MIG STELPUR.
4 ummæli:
Nei, held að ekkert hafi gleymst en takk sömuleiðis. Ég skemmti mér afar vel og ávallt gaman að gleðja aðra.
Þetta hefur verið æðislegt hjá ykkur :) ! Leiðinlegt að geta ekki verið með, en það er víst ekki hægt að vera allstaðar- sérstaklega ekki þegar maður er þreyttur með bumbuna útí loftið he he
En gott þú skemmtir þér vel
knúsar Harpan
Gaman gaman :) Vildi óska þess að ég hefði getað verið með ykkur.
saknaðarkveðjur.
Til hamingju með brullupið ljúfan. Vonadi að þið hafið átt fallegan og góðan dag. Gangi ykkur allt sem best í lífinu og kífinu.
Kveðja Gunnhildur
Skrifa ummæli