miðvikudagur, júlí 11, 2007

Orðin gift kona


Á miðvikudaginn síðasta brunaði ég út á flugvöll að sækja 8 norðmenn, eða mína norsku fjölskyldu. Fórum með þau í Bláa (græna) lónið og svo var farið til Reykjavíkur að ná í bílaleigubíl og svo farið heim til mömmu í mat. Fimmtudaginn fórum við í fyrr ferð með Herjólfi yfir til Vestmannaeyja. Ferðin gékk vel og kíktum við á Illugugöuni hjá ömmu og afa áður en við fórum í bústaðinn að tæma úr bílnum. Rúntuðum um eyjuna og nutum þess að vera komin þangað, ég fór í prufugreiðslu og svo kom presturinn að gera skyrslu, kvöldinu var síðan eytt í pottinum. Föstudagurinn fór í ymsa hluti, sækja fólk í Herjólf, þeytast hingað og þangað, fékk svo salinn kl 19 og var byrjað að raða og skreyta og vorum við búin þar kl 23, skrapp þá til ömmu og afa, en það var matarboð þar kl 21 og ég misti af því, en fékk ristað brauð áður en ég fór til Karenar í prufuförðun. Brjálað að gera sko.
Laugardagur, stóri dagurinn runninn upp. Vaknaði snemma á undan öllum hinum, fór í sturtu og svona og um 10.30 fórum við á hárgreiðslustofuna, Ísold var fyrst greidd og var hárið á henni svaka flott, ég í stólinn beint á eftir henni. Þóra kom að taka myndir og Eva kíkti líka. Fórum upp í bústað og Karen kom að mála mig. Vorum svo bara mjög rólegar þarna. Pabbi kom með blómin og kl 15 byrjaði Þóra að klæða mig í kjólinn. Pabbi kom síðan að sækja mig rétt fyrir 16 og lentum við í smá traffik á leiðini í kirkjuna og þar af leiðandi var beðið aðeins lengur eftir mér en áætlað var. Ég datt ekki inn gólfið og var athöfnin bara mjög falleg að mínu mati. Eftir kirkju druknuðum við nánast í hrísgrjónum, hahaha. Gunni tók myndir fyrir utan kirkjuna og líka uppá útsynispalli, hlakka til að sjá myndirnar (fæ þær líklega á morgun) Við mættum síðan í veislusalinn, fengum í hendur glæsilega skreytt og áletruð glös og var skálað. Kvöldið var æðislegt og maturinn alveg frábær. Kakan alveg bomba svaka sæt en mjög góð, jafnvel betri á öðrum degi. Fengum að heyra frábærar ræður og Eva stóð sig eins og hetja í veislustjórastöðuni. Norðmennirnir sérstaklega ánægð með það að hún talaði, Íslensku, Ensku og Dönsku, Klapp, Klapp fyrir Evu. Tókum brúðarvalsinn (eina sem ég var stressuð fyrir) og svo var það barbie og ken leikurinn, já það var svoldið fyndið. Fórum svo heim í bústaðinn og mikið var gott að komast úr skóm og kjól, fór út á pall að hrista hrisgrjónum úr hári og nærfötum. Skelltum okkur síðan í pottinn. Það var búið að dreyfa rósarblöðum á gólf og rúm og við vissum reyndar ekki fyrr en daginn eftir að það var jarðaber og freyðivín í ískápnum.
Vaknaði eldsnemma á sunnudagsmorgni en EK sá um að við færum á fætur um 7. Þrifum og gengum frá í salnum. Skutluðum fólki í Herjólf og á flugvöllinn, Már var aðeins hjá okkur uppí bústað áður en hann fór í flug. Náðum síðan í norðmennina og grilluðum uppí bústað og fórum í pottinn og nitum þess að vera þarna í sól og blíðu.


Skutlaði norðmönnunum í Herjólf mánudagsmorguninn og fór síðan aftur að sofa. En það fékk mikið á í þeim svefni, dreymdi að ég væri að passa húsið fyrir mömmu og Hermann og það var einhver að reyna að brjótast inn, síðan var reynt að ræna mér og ég var að slást við manninn og þegar ég var búin að koma mér í stöðu til að gefa honum olbogaskot, þrusaði ég olboganum í vegginn og vaknaði við þann sársauka og öskraðu. Já ég blánaði strax og er með þvílíka marið, mikið fegin að þetta var eftir brúðkaup. Tókum því svo bara rólega, skiluðum áfengi í ríkið, kökustandinum í bakaríið og skiluðum lyklinum af salnum. Ætluðum snemma að sofa, en horfðum frekar á spólurnar úr veisluni.
Þriðjudagur, þreif bústaðinn raðaði út í bíl, en sendi strákana út í labbitúr á meðan. Fórum síðan í Herjólf kl 16. Vorum komin í bæinn kl 20 og var þá bílinn tæmdur og fengum okkur pizzu´. Ísold kom að passa og við, Vegard, Helene og André fórum í Pool. Keyrði svo út á Keflavík með Helene og André og var komin heim kl 1.30 í nótt. Voða gott að sofa í sínu egin rúmi aftur. Í dag var aðeins snúst með restina af norðmönnunum og svo keyrt út á flugvöll. Við erum síðan bara búin að vera að ganga frá og koma hlutum fyrir.
Ég þakka bara kærlega fyrir okkur, allar kveðjur og fólkinu sem lagði það á sig að koma til Vestmannaeyja að samgleðjast okkur.
PS.. Fyrir þá sem ætla á Þjóðhátíð þá er undirbúningur hafinn í Herjólfsdal.

2 ummæli:

Eva sagði...

Mikið er ég glöð að heyra hvað þið eruð ánægð og að ég hafi ekki klúðrað neinu :-D

Er reyndar voða ánægð að heyra hvað þetta hefur gengið vel hjá ykkur að þið hafið notið dvalarinnar í Eyjum

Eva sagði...

Hey, var að taka eftir að þú þarft að fara laga textann þarna uppi ;)