Á föstudaginn eftir vinnu, fórum við í að pakka í bílinn, fórum að versla og brunuðum síðan austur. Amma sagði við mig að þetta væri í Gunnarsholti en þegar við komum þangað var engin þar, þá kom í ljós að ættarmótið var haldið að Gunnarshólmi. Komum þangað í rigningu, tjölduðum og svona. Fengum okkur að borða í samkomuhúsinu og EK sofnaði síðan þar í fanginu á mér undir söng og gítarspil. Við ungafólkið vorum að fram eftir kvöldi og EK svaf eins og rotaður í tjaldinu á meðan. Kíktum annað slagið í tjaldið og barnið bara hreyfðist ekki, svo þreyttur. Laugardagurinn var vel skipulagður með leikjum, nammi og fleyra fyrir börnin. Voða góður matur um kvöldið og skemmtun frameftir. Við fórum reyndar tiltulega snemma að sofa og sváfum til að verða 10 og EK líka, enda var hann að allan daginn. Pökkuðum saman í morgun og fórum á Hellu til ömmu og afa. Fengum gott að borða og syndum þeim myndir úr brúðkaupinu. Keyrðum svo heim og erum búin að vera að taka til og ganga frá, þvo þvott og svona skemmtilegt. Helgin var æðisleg og bara gaman að vera Skuldari, hihi
sunnudagur, júlí 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


2 ummæli:
það er aldeilis, bara fyndið samt með staðsetninguna ;) en gardínurnar eru til þannig að það er bara koma þeim til ykkar...
Ég hef einmitt verið á ættarmóti á sama stað ;) ! annars vildi ég nú bara kvitta ;)
Skrifa ummæli