Í gær morgun var ég mætt upp í hafnafjörð að sækja hana Þóru vinkonu en það var verið að gæsa gæsina. Hún átti ekki alveg von á okkur svona snemma og var ekki klædd, hún fékk svaka plagg með lista með því sem hún átti að taka til á 15 min, svo fór hún í þennan viðbjóðslega búning. Hún hélt þá bara að hún ætti að vera í þessu og þegar hún var farin af stað niður tröppunar fékk hún annan búning.




Svo er það eitt sem mér finnst alltaf jafn fyndið, fólk sem er að koma að skoða gjafirnar okkar og svona. Flestir hafa alveg áhuga á því, en karlmenn bara já nyr ískápur fínt, nóg pláss fyrir bjór, en konur skoða inní og frystinn og hafa mun meiri áhuga, eins með hnífaparasettið. Áberandi munur á kynjunum í þessum málum, haha.
Annars er það bara sama gamla, vinna og svona. Við fórum reyndar í bíó í dag á nyju Simpsons myndina, var bara mjög gaman. Hittum svo Ísold þar en þá var hún með mömmu sinni og co í bíó. Á morgun er það bara aftur vinna svo verð ég að koma mér út að hlaupa ef ég á að meika mína 10 km í Reykjavíkur maraþoninu, en ég hleyp fyrir Vildarbörn og er stolt af því.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli