miðvikudagur, ágúst 01, 2007

† Blessuð sé minning hennar †


Í dag eru liðin 12 ár síðan hún elsku vinkona mín hvarf í Stårmdalsåga í Mo i Rana.
En þar sem minningarreitur hennar er í Tromsö og ég á Íslandi þá kveiki ég bara kerti hér fyrir hana.
En mikið vildi ég óska þess að hún væri á lífi og í heimsókn hjá okkur hér á Íslandi. Mamma hennar segir reglulega að henni finnst skrítið að fylgjast með mér og hugsa til þess hvernig Eva væri í dag.
Ætla nú ekki að hafa þetta neitt lengra.

1 ummæli:

Eva sagði...

Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Vonandi áttiru góðan dag og rifjaðir upp góðar stundir með Evu.