Á föstudag eftir vinnu var farið heim að pakka niður og troða í bílinn. Um kvöldmat kom Guðjón með Andrés Blær til okkar og við brunuðum af stað upp í Borgarnes, og þaðan áfram up í bústað. Komum okkur fyrir og hituðum ofna og ég eldaði ofaní liðið. Krökkonum hent í bólið og spilað frameftir. Laugardagur fór í að leika úti, fara í sund í Borgarnesi, leika meira, horfa á barnaefni, grilla, rífast aðeins aðalega sammt yngri kynslóðin. Borðuðum gtillað læri sem var notla bara gott. Aftur fór kvöldið í spilahæfileika okkar eldra fólksinns.Sunnudagur, jú strákarnir voru að mestu vinir, en sammt ornir þreyttir á hvorum öðrum en allt í lagi, eldristrákarnir og unglingarnir fóru í Borgarnes í sund og fótboltaáhorf, en EK og AB fengu laugardagsnemmið sitt en fyrst varð að leita, vorum úti að leika, tíndum bláber og nutum þess í botn að vera úti í sólini. Grilluðum pylsur í hádeginu og kótilettur um kvöldið. Svo var tekið almennilegt spilakvöld/nótt það var allavega spilað til að verða 6 og þá var sko farið að sofa.Í dag var tekið til, þrifið og pakkað í bílana aftur. Við Einar brunuðum á undan hinum en þó með Andrés Blæ með okkur og skiluðum honum til ömmu sinnar þegar í bæjinn var komið.
Þetta er allt í mjög grófu og stuttu máli en helgin var alveg frábær.
Vil líka segja ykkur frá því að Þrúður vinkona og Tóti eignuðust litla (stóra) prinsessu, en sú litla lét sjá sig á föstudaginn og var hvorki meira né minna en 16 merkur og 56 cm, takk fyrir pent. En ég óska þeim til hamingju með krúttuna.
mánudagur, ágúst 06, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það hefur aldeilis verið nóg að gera hjá ykkur... en greinilegt að ellin er farin að segja til sín :p haha
Skrifa ummæli