sunnudagur, ágúst 12, 2007

Að koma haust

Já það er ágúst mánuður næstum hálfnaður, skólarnir að byrja og haustandrúmsloft í öllum verslunum. Við erum bara tiltulega róleg, Ek að byrja aftur í leikskólanum á morgun og þá hefst hanns síðasta ár í leikskóla, úff. Þóra tengdó datt og brotnaði illa fyrir helgina og er á spítala, greyjið átti bókað far til Kanada á morgun en fer ekki fet. Við vonum bara að hún nái sér vel og geti farið út fljótlega eftir áramót. Í gær fórum við í bæjinn eins og svo offt áður á Gay pride, mjög skemmtilegt, fengum æðislegt veður og gangan var mjög flott, Már einn af þeim fremstu. Hjálpaði Höllu frænku aðeins í flutningum en þar sem ég kom svo seint var lítið eftir handa mér að gera, nema kanski hjálpa þeim að borða pizzu, hihi. En hún Halla var að kaupa sér svaka flotta íbúð alveg splunkunyja. Eva og Gunni komu síðan að spila með okkur í gærkvöldi og skemmtum við okkur bara alveg mjög vel. Pabbi hringdi í dag og sagðist vera á Prestvannet og ég notla trúði honum ekki, en svo heyrði ég í Kjell þarna á bakvið og þá varð ég að trúa honum, Já kallinn er i Tromsö og hefur mjög gaman af því, enda hefur hann ekki komið þarna í mörg ár. Svo hringdi hann aftur þegar hann var kominn á T.I.L. völlinn og leyfði mér aðeins að heyra upphitunina fyrir leikinn, bara gaman þetta. Við EK elduðum voða góðan mat saman og svo fór hann snemma að sofa tila ð vera útkvíldur fyrir leikskólann á morgun. Annars bara gott að frétta.

2 ummæli:

Eva sagði...

Takk fyrir frábæra kvöldstund :) við skemmtum okkur stórfenglega!!!

Nafnlaus sagði...

Hæhæ bara kvitta :)
VERÐUM svo að fara föndra sem fyrst :)
kv Harpan