fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Fátt að frétta

Það er allavega vetur í lofti og ég komin með þennan (/)/%/&)%(&%$&/ hósta (bronkitis), svo verður það kvef og endar svo í lungnabólgu ef ég þekki sjálfa mig rétt. Ég reyndar á tíma hjá háls, nef og eyrnalækni eftir helgi og ég vona að hann gefi mér tíma til að rífa úr mér hálskyrtlana. Annars er það bara vinna og vinna og meiri vinna. Ég er reyndar búin að skrá mig í skólann og í þetta sinn er það stærðfræði, enska og hagfræði, þar sem þessi asnalegi skóli áhvað að kenna ekki tölvufærðiáfangann sem ég er að bíða eftir að komast í, en vonandi verður það bara næst með íslenskuáfánganum og þá er ég búin með allt sem ég get tekið í fjarnámi og verð með einhverju móti að koma mér í dagskóla að klára restina.
Ísold og Einar skemmtu sér mjög vel í London og horfi ég á allar myndirnar og svona hálf öfunda þau, en ég kem mér þangað síða meir, svo eru nú allavega tvö ferðalög bókuð, það er Boston og svo Noregur næsta sumar. Svo notla dauðlagar mig að ferðast bara um allan heiminn eins og hann leggur sig, en þá þarf ég nú fyrst að vinna smá í lottó.hehe

1 ummæli:

Eva sagði...

Heyrðu vinan, ekkert svona! Ég hef ekki farið eina einustu utanlandsferð síðan ég kom heim frá France 2005!! Þannig að bara ull á þig :p neinei, ég tek þetta út seinna meir.... er nú einusinni yngri en þú híhíhíhí