sunnudagur, september 02, 2007

Enn ein helgin að klárast

Við byrjuðum helgina vel, fórum í mat í Þverárselið og mmmmm alltaf jafn góður maturinn þar. Fórum svo bara nokkuð snemma að sofa á föstudeginum. En úff hvað er orðið kallt á kvöldið, ég meira að segja setti hita á ofninn inní herbergi, það hefur ekki gerst mjög lengi. Við EK vorum í náttfötum í allan gærdag, Einar var að vinna og við EK vorum bara hiema í leti að horfa á rigninguna. Ég reyndar bakaði snúða og svo komu Petra, Ingvar og Heiður Ösp í heimsókn. Eva og Gunni komu svo í gærkvöldi og við spiluðum fram á rauða nótt.
Í dag komst ég að því að það er sko miklu meira en auðvelt að þrífa gluggana að utan, já þeir eru allir í sithvorri hæðini og jarðvegurinn líka. Þannig að það endaði með að Einar þreif þá flesta þar sem ég náði ekki upp, þrátt fyrir að standa efts í stiga. Ég verð bara búinað þróa nyja tækni við þetta áður en það vorar á ny. En ég ætla að þrífa svoldið mikið fyrr á næsta ári, hehe.
Svo afrekaði ég líka ða fúaverja restina af grindverkinu mínu þannig að ég ætti að fara að geta dúndrað þessu niður í jörina á næstu dögum, fer eftir nennu hérna á heimilinu, en allavega áður en næturfrostið kemur í heimsókn, brrrrrr.
En núna erum við búin með útiveru dagsinns og núna tekur letin við enda er líka sunnudagur.

1 ummæli:

Eva sagði...

Takk kærlega fyrir okkur, eins og venjulega skemmtum við okkur konunglega, ég á eftir að muna lengi eftir orðinu skögultönn :p haha

Ég er farin að lesa... chiao