sunnudagur, september 09, 2007

Bostonblogg






Fimmtudagsmorgun mætti ég í vinnuna og vann til hádegis, svo var bara allt hafið til og brunað út á völl. Flugið gékk mjög vel, nema að mér fannst mjög loftlaust og var alveg að kafna á tímabilum, loftið var líka voðalega þurrt eithvað og greyjið kallinn sem sat við hliðiná okkur hélt ég væri að kafna í einu hóstakastinu. Síðan vorum við svo heppin að sitja fyrir aftan fólk með lítið barn sem þótti flugið ekki skemmtilegt. Litla daman öskraði svoldið mikið á háa C-inu. Og svo kíkti hún stundum yfir stólbakið og ullaði og var í leiðini fyrir skjánum, hihi. En svo svofnaði hún og jei þá gat ég líka sofnað aðeins. Lentum svo í Boston kl 18,15 á staðartíma í 24 stiga hita og var það mjög notarlegt, sólin var að setjast og manni var hugsað til Íslands, rok og rigning, brr. Við tókum svo strætó að lestarstöðini og svo lest hingað uppeftir en enduðum svo á leigara þaðan og upp að hóteli. Ansi skondið, mér var nemmla sagt að það væri mjög stutt frá lestarstöðini að hótelinu, en þetta er alveg 15 min labb og maður sér ekki hótelið, þannig að leigarinn hentaði vel. Fundum herbergið okkar og vá hvað það er flott, ekki hægt að kvarta. Fórum svo aftur niður og tókum skutluna að mollinu, en þar fengum við okkur að borða í Cheescake factory, úff ég fékk mér þann stæðsta hamborgara sem ég hef séð og nei ég komst ekki nálagt því að klára hann. Fórum síðan að sofa kl 12 (miðnæti), stilltum klukkuna svona ef við skildum sofa frameftir. En svo kl 01 þá byrjar einhver klukka að hringja að ég hélt fyrst, ég reyndi þvílíkt að slökkva á símanum og svo vekjaraklukkuni sem er hérna í herberginu, en allt kom fyrir ekkert. Síðan var þetta leiðindar píp líka farið að tala og þá fór ég nú að vakna almennilega. Og þá heyrði ég, bíp,bíp,bíp blablabla þetta er aðvörunarhljóð, ef þú heyrir það eftir þessi skilaboð, skaltu ganga á næsta exit og yfirgefa bygginguna, bíp,bíp,bíp. Já þetta kom sér vel eftir klukkutíma svefn, við svona fórum að átta okkur og drifum okkur í smá föt og út. Koma þarna tveir risaslökviliðsbílar í hlað þegar við komum út og þetta var nú svona næstumþví eins og í bíómynd, meina þvílíkur útbúnaður sem einn maður þarf að beravið stóðum þarna úti í svona ca 10-15 min, svo var bara ekkert að og við fórum aftur að sofa, nema svo byrjar bípið aftur og afsakanir og ég veit ekki hvað. Hvernig væri að prenta bara út bréf á línuna og hafa ekki þennan hávaða um miðja nótt, en þetta hætti nú að lokum og sváfum við vært og rótt þar til ég vaknaði kl 5.30 en þá er notla íslensk klukka 9.30 (er bara eithvað innbyggt að vakna þótt maður fari seint að sofa).
Föstudagur: Fórum snemma niður á lestarstöð og tókum lestina niður í Downtown og röltum þar um, droppuðum inn í sumar búðir sem voru þá búnar að opna og nutum þess í tætlur að vera þarna á röltinu í sól og blíðu. Fórum svo á Arlington og löbbuðum þaðan á Newbury street og löbbuðum þar um í glampandi sól, droppuðum öðruhvoru inn í búðir. Bara æðislegt, verst hvað manni var orðið heitt og sveitt. Svo lá leiðin að Lecmere og fórum þar í eitt moll og loksinns fann ég crocs en ekki eftirlíkingar, en það var nú ekki mikið úrval, en ég fann mér eitt par sem var síðasta í þeirri stærð og svo eitt á Heklu Katrínu en það var allt og sumt. Eftir þetta ráp fórum við að South bay og misstum okkur aðeins í Target og svona áður en við fórum heim á hótelið. Eftir smá sturtu og afslöppun fórum við aftur af stað og niður í bæ, röltum í gegnum Boston Public garden, sllt voða flott þar og maður að spila á harmoniku á brúnni þar. Fórum á Cheers og borðuðum þar Boston´s best hamburger, sem var alveg mjög góður en úff hvað kjötið hérna fer illa í mig. Tókum svo lestina heim og röltum upp á hótel í fyrsta skipti frá lestarstöðini. Þannig var 2 mánaðar brúðkaupsafmælið.
Laugardagur: Vöknuðum um 8 og vorum bara mjög róleg, tókum leigara í Wal mart og vorum þar dágóða stund og ég að sjálfsögðu misti mig í skrapp deildini. Tókum svo aftur leigubíl heim á hótel. Gengum frá því sem var keypt og héldum af stað í mollið hérna rétt hjá. Við náðum bæði að kaupa okkur eithvað smá en það er ekkert vit í því að hanga inní molli þegar það er svona gott veður, var um 34°í gær en fór hátt í 40°í dag. Komum heim og fengum fyrirmæli um að mæta á eitt herbergið kl17 og svo þar var boðið upp á snakk og drykki. Okkur var skipt í lið og svo var ratleikur um hótelið. Eftir ratleik fengum við klukkutíma til að þrífa af okkur svitafíluna og koma okkur í skárri föt og mæta niður á barinn. Okkur var síðan hleypt inn í sal og þar voru fordrykkir, síðan kom salat í forrett, bara alveg ágætt, maturinn var eflaust ágætur, en ég treysti mér ekki í kjötið, en smakkaði kartöflumúsina. Þjónarnir voru nú ekkert til að hrópa húrra yfir, en það var skvett og bramlað hvar sem þeir komu. Hóparnir úr ratleiknum sátu saman og áttu svo að koma með skemmtiatriði, svo var keppni í að púzla saman 8 púslbitum. Verðlaunaafhending, eftirréttur og svo svaka atriði hjá “stjórnini” svo var bara dans og svona, við reyndar vorum svo þreytt, vorum mest úti þar sem það var hlyrra þar en inni, svo fórum við fljótelga bara upp að sofa. Núna erum við að fara að pakka og fá lánaða vikt hérna á hótelinu til að vera ekki með of þungar töskur. Þarf líka að tékka hvort flugið líti vel út eða ekki. Ef við förum með seinni vélini ætlum við að fara í bæinn á eftir og skoða maparium, en það kemur í ljós. Ég ætla ða segja þetta gott af Bostonbloggi, en endasptretturinn kemur síðar.

2 ummæli:

Eva sagði...

Vá, eru í alvöru komnir 2 mánuðir! En frábært hvað þið eruð heppin með veður og skemmtið ykkur vel :)

Eva sagði...

Ekkert smá skemmtilegar myndir hjá ykkur :) ég reikna með að "wham" hafi slegið í gegn, híhí