sunnudagur, september 16, 2007

Blogg nr 111 hihi

Já þá er alveg heil vika síðan við vorum úti í Boston og ég verð nú að segja það að ég væri alveg til í að vera komin þangað aftur. En já ég ætlaði nú eithvað að tjá mig um síðasta daginn þarna úti. En við allavega ákváðum að taka sénsinn á seinni vélina og settum þá töskurnar okkar í geymslu og lestuðumst niður í bæ og aðeins lengra en það fórum semsagt hjá Harvord og skoðuðum byggingarnar þar. Síðan fórum við í Maparium, kíktum reyndar inn í eina sérstaka kirkju fyrst. Mapariumið var rosalega flott, mjög sérstakt að standa á glerbrú innaní glerhnetti. Sem er handmálaður fyrir langalanga löngu síðan, man ekki ártalið. Vorum sammt komin með hálsríg eftir þessar 20 min þarna inni. Tókum svo smá labb í miðbænum og kíktum í 2 búðir áður en við lögðum aftur af stað upp á hótel, þar sem við hittum hina og tókum rútu saman út á flugvöll. Okkur var sagt að það hafi bilað vél í Minneapolis og að það væri líklega fullt í vélina, verð að viðurkenna að ég hafi fengið smá í magann, en þetta reddaðist allt. Leit og eftirlit var nú langt frá því að vera jafn strangt og í fyrra. Svo tók við smá fríhafnarrúntur og svo bara sesst niður að lesa bók þar til kallað var út í vél. Vorum svo bara rétt rúma 4 tíma á leiðini heim, ég náði að sofa nánast alla leið. Vorum fljót gegnum fríhöfnina og töskurnar voru teknar í gegnumlysingu á leiðini út, en það var allt í lagði þar sem við vorum ekki með neitt ólöglegt og bara með 3 töskur og allar undir vigt. Hentum töskunum heim og fórum svo að vinna. EK var ekkert smá glaður að sjá okkur aftur og var enn æstari í að sjá hvað við keyptum handa honum. Vikan er búin að líða tiltulega hratt og maður er kominn á réttan sólahring aftur, en jú við vorum þreytt eftir "Bostonmaraþonið" endalaust labb og svona.
Í gær voru hérna iðnaþarmenn á vegum þeirra í kjallaranum og voru að brjóta í skorsteinin niðri í þvottarhúsi og það var sót og drulla útum allt, þeir heltu vatni yfir gólfið og þóttust skúra en það var ekki uppá marga fiska. Við Einar þrifum og þrifum og allt var svart og ógeðslegt, tók líka veggina og þvottavélarnar og svo snúrurnar í gegn, ekkert voðalega gaman. Í morgun bakaði ég franska súkkulaðiköku og snúða og koma Krissa og krakkarnir á eftir í kaffi. Annars er maður bara rólegur, skólinn er byrjaður og maður að koma sér í lærdómsgírinn. Kemur allt, maður þarf aðeisn að sparka í rassinn á sjálfum sér. Það eru bostonmyndir á síðuni okkar.

1 ummæli:

Eva sagði...

Talandi um að sparka í rassa :p ég skal sparka í þinn ef þú sparkar í minn :p haha

Anywho, gangi þér vel með lesturinn!!!