miðvikudagur, september 19, 2007

Veikindi

Já ég er búin að vera með þennan líka svakalega hósta og kvef núna í 3 vikur og já ég er orðin alveg rosalega þreytt á þessu. Var svo ógeðslega slöpp í gær og var heima og svaf meira og minna allan daginn. Svo kom EK heim úr leikskólanum með hita. Þannig að ég er heima í dag líka, þó skárri en í gær og EK virðist nú eithvað aðeins hressari. Afi Gústi er 70 í dag og er ætlunin að fara út að borða í kvöld, vona bara að við verðum nógu hress í það. Ég er eithvað búina ð vera að læra í dag og er alveg ogðin ringluð í þessu algebra, uppáhaldið mitt haha. En fyrsta vikan í skólanum er að verða búin og maður er að koma sér inn í þetta allt og reyna að deila þessum fögum niður á daga. Mér synist nú að ég verði að taka eithvað í stæ á hverjum degi til aðkomast yfir allt, enskuna svona 2 í viku fyrir utan lestur í bókum, en hagfræðin er aðeins minni, bara lesa vel kaflana og svara spurningum og lesa vel glærur frá kennara. Ég er alveg nokkuð viss um að þessi önn mun líða hratt, en það er nú oftast þannig að tíminn fram í desember er fljótur að líða. Það eru afmæli framundan hjá okkur og það þarf nú að halda uppá 5 ára afmælið hjá herramanninum hérna í nóvember og þá er nú orði mjög stutt í jólin. Og það eru nú löng jól í ár, bara 2 vinnudagar á milli jól og nyárs. Ég er nú farin að hlakka til að gera sett upp tré hérna í stofuni og hafa kertaljós og skraut, hlusta á Ek suða um pakka og alla jólasveinana sem kíkja á nóttini. Vonandi kemur almennilegur jólasnjór, en ég geri mér nú ekki of miklar vonir um það frekar en venjulega. Ég vona líka að ég komist í hálskyrtlatökuna sem fyrst, hefði getað fengið tíma í gær en er með of mikin hósta til þess, meiri hætta á blæðingu eftir aðgerðina. Helst vil ég nú bara batna strax, geta farið að hreyfa mig aftur án þess að liggja í hóstakrampa og vera hress og kát, fara í vinnu, koma heim og elda og svo læra þegar EK er sofnaður. EN maður fær víst ekki alltaf allt eins og maður vill og óskar.

1 ummæli:

Eva sagði...

Hvurslags veikindi eru þetta á ykkur!!! Vonandi losnaru við eitthvað af þessu við kirtlatökuna...