sunnudagur, september 23, 2007
Helgin að klárast
Á föstudaginn fórum við út á álftanes að spila og var bara mjög gaman hjá okkur. Á laugardaginn var bara kallt en maður afrekaði að þrífa smá og svona. Fórum upp í Mosó að sækja pakka sem ég átti þar og svo heimsóttum við Hörpu og prinsessuna, sem er notla ekkert nema yndislegt. Við keyrðum aðeins niður í bæ og guð hvað ég sakna miðbæjarinns, væri sko alveg til í að flytja þangað aftur og þá hells í sætt lítið hús í þingholtunum. Við vorum allavega miklu duglegri að fara í labbitúra þegar við bjuggum í bænum, en ekki hérna. Svo líka erum við alveg hætt að fara niður í bæ að rölta. Þetta er aðeins of langt fyrir EK þar sem hann er orðinn og stór fyrir kerrur. En já við erum í fínu húsnæði og erum ekkert að fara að setja okkur á hausinn með að kaupa í miðbænum. Í nánast sama augnabliki sem við komum heim tókst EK að hálf rota sig, en hann var að hoppa um á rody en svo skall hann í gólfið og vankaðist eithvað. Er með alveg svakalega kúlu aftaná höfðinu og tók rúman klukkutíma að ná honum niður og slappa af. Við boðuðum síðan kvöldmat og vorum með kósykvöld, horfðum á Toystory og borðuðum snakk. Ídag er ég búin að taka hressilega til í skápum og skúffum. Fórum í Ikea, rúmfatalagerinn og Elko, Ek fékk leik í PS2 og var ekkert smá ánægður, en það var annað mál þegar hann mátti ekki vera lengur í leiknum. En hann er að taka gleði sína á ny og er á leiðini í bað. Annars er ég að bía eftir að Einar komi heim svo ég geti farið út í bílskúr að setja saman hillur sem við keyptum áðan. Og þar sem mér finnst svo gaman að setja saman hluti hlakkar mig rosa mikið til. Svo þarf ég reyndar líka að klára að læra.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Go Karitas Go Karitas ;) en vonandi er kúlan að hjaðna hjá EK.
Skrifa ummæli