laugardagur, september 29, 2007

Til hamingju Valsarar

Í dag unnu Valsmenn Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta og er mikil hamingja hér á heimilinu. Einar var alveg ofur happy þegar hann kom heim af leiknum. Við hin þvældumst í búðir í dag, svo fór ég að rifja upp hvernig blessaða saumavélin virkar og byrjaði að sauma á mig grímubúning. Rosa fjör, ég er nú engin saumakona en þetta virðist alveg vera að ganga upp. Annars er það bara leti og smá lærdómur, tiltekt, eldamennska og eiga við litla orminn. Skutlaði Einari út í Valsheimili áðan en þar er mikill fögnuður í gangi. Við Ísold sitjum bara að glápa á mynd núna og éta óhollustu. (snakk og nammi) það er þó laugardagur. Annars er fátt að frétta, vorum reyndar í mat hjá tengdó í gær og erum að fara með þeim í hádeginu á morgun á Loftleiðir, en hann Kalli á afmæli á morgun, þannig að það er um að gera að fagna smá.

1 ummæli:

Eva sagði...

Hvurslags lúxus er þetta alltaf á ykkur :p en ég hlakka til að sjá afraksturinn :D