föstudagur, október 05, 2007
Stutt í aðgerð
Já nú er komin helgi og ég keypti í dag miða á Iceland Airwaves en svo akkurat þá hringdi doksi og gaf mér tíma í aðgerðina deginum áður en festivalið byrjar. Þannig að hann Einar minn fær nú að fara þarna eithvað að skemmta sér. Annars bara fátt að frétta, ætla að vera dugleg að læra um helgina og njóta þess líka að vera heima að slappa af, fer reyndar í skírn á morgun. Er reyndar búin að láta aðeins reyna á saumahæfileikana og er búin með helan grímubúning á mig, svo er bara Einars eftir. Já eins og sést þá hef ég bara ekkert að segja frá, þannig að ég ætla að láta þetta gott heita.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ekkert að segja frá, þetta er nú meira en ég hef að segja ;)
En hlakka til að sjá búninginn!
Skrifa ummæli