þriðjudagur, október 09, 2007

Friðarsúlan tendruð

Hérna sit ég í sófanum og horfi á beina útsendingu frá Viðey, þar sem er verið að spila Imagne og verið að tendra þessa umtöluðu friðarsúlu Yoko Ono. Ljósið sést mjög vel héðan frá svölunum og og mun þessi súla lýsa frá í dag á afmælisdegi John Lennons og þar til 8 desember daginn sem hann var myrtur. Og er áætlunin að þessi súla muni lýsa í þessa 2 mánuði á ári hverju héðan í frá og minna á óskina um frið á jörðu. Svo ég segi bara PEACE

1 ummæli:

Eva sagði...

Ansi áhugavert... en bjarminn sést alla leið til mín í sveitina sem ég tel ansi gott :p