laugardagur, október 13, 2007

Þá er hún móðir mín orðin gift kona

Já okkur var semsagt boðið í mat hjá mömmu og Hermanni í kvöld, en það eru nokkrar vikur síðan okkur var boðið. Ég fékk einhver hugboð um að þetta yrði gifting og var búin að segja það við nokkra sem voru ymist sammála eða ósammála mér en ég hafi rétt fyrir mér. Mamma hringdi í mig þegar ég var á leiðini heim úr vinnuni og sagði mér þetta. Svo mættum við í matinn og það voru allir voða hissa. Bara börnin þeirra sem fengu að vita í dag. Allavega var þetta bara ágætt boð og mikil undrun hjá gestum. Þannig að ég segi bara til lukku mamma og Hermann.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já til hamingju með það!
Kveðja úr Tromsø :)

harpan sagði...

til lukku með það :) ! hef ekki kíkt hér í nokkra daga, fullt sem ég átti eftir að lesa en allavega kvitt kvitt
Harpan