þriðjudagur, október 16, 2007

Hálskirtlarnir farnir

Já ég var mætt uppí Glæsibæ kl 10 í morgun með eginmanninn með mér. Fékk þessi líka æðislegu spítalaföt, stóran skammt af verkjalyfjum, æðalegg í hendina, kæruleysissprautu, og svo kom grímann og ég datt út. Ég vaknaði nú ekki aftur fyrr en að verða 13 og þá tók við smá dorm reyna að taka ekki of mikið eftir sársukanum, reyndi að drekka en það gékk ekki, hrækja blóði og svo framvegis. Fórum þegar klukkan var að nálgast 14.30, keyptum sæukkulaði shake á leiðini en hann fór ekki ofaní mig frekar enn eithvað annað. Síðan þá er ég búin að reyna við vatn, frostpinna, skyr, svala og ekkert virkar, ég bara get ekki kingt. Byrjaði svo að reyna að taka verkjalyfin allt of seint, þannig að það er búið að vera hreint helvíti að reyna að drekka verkjalyfið. Svo er ég orðin svo svöng, enda tæplega sólahringur síðan ég borðaði síðast. Og aldrei hefur mig langað meira í köku eins og núna, arg. Ég sammt er að vetrða búin með fyrsta glasið með verkjalyfinu og get kyngt munnvatni án þess að herpast saman. Þannig að næsta skref er að reyna að fá sér einhverja smá næringu. Svo er nú það furðulega, það gékk mjög illa að koma vöka í æðina á mér, ekki nema hálfur poki en þau ætluðu nú að koma allavega heilum í mig og jafnvel meira, svo tekst mér ekkert að drekka en ég er sí mígandi.
Elías Karl kom síðan hress heim eftir æfingu og virkenndi mér alveg ægilega, ég sagði honum það að ég ætti erfitt með aðtala og þá fór hann að spurja og spurja og ég ég svara segir hann, mamma þú getur ekki talað núna, uss. Og svo finnst honum voða merkilegt að mér batni ekki, meina ég var nú hjá lækni í dag, haha (sem gerði mig veika)

3 ummæli:

Eva sagði...

Börn geta verið svo yndisleg :D

En farðu þér nú hægt og láttu þér batna sem fyrst!!!

Nafnlaus sagði...

Æj þau eru svo sæt þessi börn.

Sendi þér bata strauma kveðja

Nafnlaus sagði...

God bedring :)