laugardagur, október 20, 2007

Alveg að farast

Já í dag er 6 dagurinn frá aðgerðini og ég er ekki að skána, nei ég versna bara. Talaði við ísól í gær og henni fannst skrítið að ég gæti talað, sem hefur ekki verið vandamál hérna fyrr en í morgun. Í gærkvöldi var gerð fyrsta tilraun til að borða en nei vá hvað það var vont. Já ég bókstaflega grenjaði eftir þessa litlu skál af súpu. Og hélt áfram að grenja til rúmlega 3 í nótt, en þá fóru verkirnir aðeins að hjaðna, svaf svo vært til að verða 8 en þá tók sama sagan við aftur, tók inn verkjalyf og svaf eithvað lengur. Við kíktum reyndar í Toysrus, en það var nú ekki lengi því mér fór að svima, rétt stungum nefinu inn í Bónus. Ég var nú alveg þokkaleg fram að kvöldmat en þá áhvað ég að gera aðra tilraun til að borða og Á Á Á ég meiddi mig svo mikið og er ekki enþá búin að jafna mig alveg. Verð að segja alveg eins og er þá myndi ég fæða 10 börn í röð frekar en að fara í svona aðgerð aftur, en sem betur fer verður það ekki. Ég er nú að vona sammt að ég sé búin að ná hápunktinum og fari allt að lagast héðan í frá. Ég allavega vona að ég komist í vinnuna á mánudaginn, þarf að fara að komast út úr húsi.

1 ummæli:

Eva sagði...

Þetta hljómar alls ekki vel! Vonandi batnar þér nú sem fyrst :)