þriðjudagur, október 23, 2007
Sjúkrahúslega, ojbara
Á sunnudaginn var ég alveg hætt að gera kingt þannig að mamma kom að sækja litla kútinn minn og við Einar fórum uppá slysó. Ég var send upp á háls, nef og eyrnadeild, þar sem ég fékk að hitta sökudólginn af þessu öllu, lækninn minn. Júpp það var tvennt í boði, fá stíla eða láta leggja mig inn. Ég þáði þessa ógirnilegu stíla og fór heim, svaf í slatta marga tíma, við Einar fórum að fá okkur ís og það var alveg næstumþví rómó, þar sem við förum ekki svona saman neitt offt. Ég náði að borða einn vélís og fullt af klaka. Svaf um nóttina en svo bara gat ég ekki kingt og varð bara hálf veik af lyfjunum. Náði sammt að sofa svolítið, Einar kom svo fyrr heim og fór með mig uppá spítala. Það var ákveðið að leggja mig inn og þá kom læknanemi sem ætlaði að taka niður allar upplysingar og setja í mig legg. Hann var voðalega stressaður greyjið og sprittaði sig í æj og ó, tók svo góðar 10 mín að reyna að finna æðina sem var nú ekki mikið mál bara blá og fín og meira að segja far eftir síðustu stungu. En nei hann klúðraði þessu og ég eins næringarlaus og ég var fór að líða illa og svo byrjaði ég að svitna og æla og æla og æla. Og þessi yndislega stressaði læknanemi stakk af á meðan ég ældi engu og blóði, stóð sig mjög vel eða þannig, hehe. Svo tók við að reyna hina hendina en það gékk betur og loksinns var leggurinn kominn á sinn stað og tími til kominn að koma sér upp á deild, þar fékk ég eitt óþæginlegt rúm og sæng og fullt af vökva, lá við að hendin færi að frosna. Ég náði að sofna um 23.30 og svaf til 1 og svo var nóttin bara þannig að ég vaknaði og sofnaði til skiptis, ekki mikil hvíld þarna. Pokinn sem ég var með var búinn kl 1 og ég spurði hvort ég mætti losna við slönguna og jújú við komum eftir smá. Ég losnaði sammt ekki við slönguna fyrr en kl 4 en ekki í meira en 5 min. Þá kom önnur hjúkka inn, nei veistu þú ert ekki búin að drekka þannig ða þú færð meiri vökva, æði. Fékk svo jógúrt, safa, kókómjólk og vatn í morgunmat, jei, gat borðað nokkrar skeiðar af jógúrtinu og drakk af vatninu. Í hádeginu fékk ég 2 tegundir af súpum, jógúrt, næringardrykk, vatn, safa, kókómjólk og lgg. Það var ekki mikið borðað. Einar og Ek komu til mín aðeins og þá sagði hjúkkan að ég gæti farið ehimef ég treysti mér til og ef ég myndi borða. Mamma kom svo að heimsækja mig en þá kom læknir og sagði að ég mætti fara heim á morgun :( En ég ætlaði sko heim að sofa vel í mínu rúmi, tók mig til og drakk fullt af vatni og borðaði smá í kvöldmatnum, borðaði alveg 1 1/2 kjötbollu og 1/2 kartöflu. Þær voru alveg mjög ánægðar með þetta og eftir smá svona puppy face fékk ég að fara heim. Einar var að vinna, Krissa að passa þannig að ég fékk Höllu frænku til að sækja mig og keyra mér heim. Mikið var gott að komast heim þar sem ég er með fóbíu fyrir spítölum og var ekki til í aðra svefnlausa nótt. Ek var líka voða glaður að sjá mig en hann skildi ekki afhverju ég var komin heim, þannig að ég sagði bara við hann að ég hefði sagt við lækninn að ég ætti svo lítinn sætan strák heima sem ég vildið komast heim til, hann tók það bara gillt og gott svar og fór að sofa. Ég alveg naut þess að fara í sturtu og fá mér smá ab mjólk, maginn þarf svona gangsetningu eftir 7 daga án matar. En allavega þá er allt á batavegi og ég vona að það verði ekkert meira svona bull. Þannig að ég byð bara góða nótt.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Vonandi batnar þér sem fyrst elskan
batakveðja
Harpan
Úff og ái. Nú er þó allavega það versta vonandi búið svo nú er bara allt á bataleið.
Bestu kveðjur frá okkur.
Það er ekkert smávegis, það sem þú upplifir... væri fróðlegt að vita hvort neminn hafi verið svona hrikalega stressaður við að sjá sjúkraskýrsluna þína ;) nei nei smá grín.
Láttu þér nú batna kona, gengur ekki lengur :p
Skrifa ummæli