
Já í gær var haldið Halloween party hérna heima og var það voða fjör, æðislegt að sjá alla í búningum og allt voða öðruvísi en þegar við hittumst. Ég var búin að skreyta hérna með kongulóm og vefum og allskonar, skar út grasker og það logaði vel í kertinu í því. Þurrísinn stóð fyrir sínu og kraumaði vel í bolluni. Allavega skemmtum við okkur vel og ég vona að allir aðrir hafi verið ánægðir. Í morgun tók við tiltekt og þrif, Einar ryksugaði og ég skúraði á eftir honum. Síðan kom þetta líka duglega frost og haglél í gær og það er bara fljúgandi hálka þannig að ég ætlaði að vera voða dugleg og skipta um dekk. Nema hvað, afturdekkin ættluðu sko ekki af. Ég held að bílinn minn sé kominn á gelgjuna og vilji bara vera á strigaskól yfir veturinn. En með duglegum spörkum frá mér og Einari losnuðu dekkinn og fjótlega voru öll 4 komin undir. Við líka þrifum sumardekkinn vel. Kalli og Gugga komu svo að skila krökkunum og kíktu inn í kaffi og köku. Við Ek fórum að versla sunnudagsmat, en ég er orðin þokkaleg í hálsinum og treysti mér í sunnudagssteik. Meiddi mig bara 2svar á meðan ég borðaði. Skutlaði Ísold heim og tók bensín í þessum skítakulda, brrrrr. Annars bara gott að frétta og hefst vinnuvikann á morgun og svo er bara alveg að koma nóvember og EK getur ekki beðið eftir afmælinu sínu, alveg voðalega spenntur. Set líka myndir á síðuna okkar frá partyinu
2 ummæli:
Við þökkum kærlega fyrir okkur :) Ég skemmti mér mjög vil og verður gaman að hafa annað slíkt að ári liðnu :-D
Oh, gleymdi að segja hvað myndirnar eru skemmtilegrar :) búin að bíða eftir þeim í allan dag...
Skrifa ummæli