laugardagur, nóvember 03, 2007
Nóvember og tilþrof 2007
Já þá er kominn nóvember mánuður og Elías Karl spyr daglega hvort afmælið hanns sé ekki alveg að koma. Það er bara 3 nóvember í dag en ég er búin að heyra þessa spurningu full offt, nú þegar. Hann tilkynnti okkur snemma morguns þann 1 að núna væri nóvember og hanns afmælismánuður. Annars gengur flest sinn vanagang, í gær var Tilþrif 2007 í vinnuni en við þrifum allt hjá okkur frá ca 8- 14 en þá átti allt að vera tilbúið og biðin eftir dómnefndini byrjaði. Við vorum með þemaið Allt í drasli og fékk ég þennan fína slopp lánaðan frá Ísfisk, var með sluplu og ljóta eyrnalokka, skúringahanska með skotamynstri og liðdóti, lekkert ekki satt. Það var búið að setja upp borða hér og þar, karlarnir með skallakollu og slaufu. Dómnefndin kom að lokum og var þeim mútað með gjöfum, freyðivíni og fleyru. Þegar þetta var búið var klukkan ogðin 17 og ég alveg hundþreytt, en áætlunin var að fara með rútu kl 18.30 í Stélið. En ég var þreytt og nennti ekki að vera þarna lengur, Einar kom þá að náí mig og við borðuðum kvöldmat og svo sofnuðum við öll, ég í sófanum og Einar uppí hjá EK. Dagurinn í dag er búinn að fara í smá búðarráp og svo hámarks óþekkt (miðað við undanfarna mánuði) Púff...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Vá hvað ég hefði viljað sjá þig í þessu! hehe :-)
Skrifa ummæli