laugardagur, nóvember 10, 2007

Mikið er ég fegin að búa í 105

Já ég er sko fegin að búa í 105, ég nebbla þurfti að fara í Hafnafjörð á fimmtudag og var svo lengi í bílaröð og leiðindar umferð að ég held ég hafi gránað á leiðini. Svo á föstudag þurfti ég aðeins að skreppa í Kópavoginn og sama %&&$%/&())=)(/&%&$$ #umferðin, garg, ég myndi sko ekki nenna þessu á hverjum einasta degi, ég nebba lendi nánast aldrei í umferð á leiðini heim, nema ef eihver framkvæmd er í gangi en það er ekki offt á þessari leið. Ég reyndar þurfti að fara með bílinn í Brimborg á mánuda og má hva var gaman að keyra á móti allri þessari umferð svona á mánudagsmorgni. En já ég er bara sátt við hvar ég er búsett og hvar vinnan er staðsett. Ekki meira um það. Hérna er allt í rólegheitum og allt óskup venjulegt, það er bara vinna, læra, elda, þrífa og allt það og svo sofa. Gerðum reyndar smá undantekningu í gær og skruppum í Njarðvík og spiluðum fram á nótt, Hildur og Heiðar takk kærlega fyrir okkur. Annars er nú komið smá jólaskap í mig, Einar reyndar bannar mér að skpila jólalöf til 1 des, en ég syng bara í staðin, haha. Jam núna er bara kominn tími á að læra meira þannig að ég segi bara Yfir og út.

1 ummæli:

Eva sagði...

Oftast finnst mér nú gott að búa í 112 :-D