Á mánudaginn áhvað ég að skipta um bíl, fór með minn í söluskoðun og svona fjör. Svo var það bara vonna og læra og allt það venjulega.
En á þriðjudaginn fór ég með rútu kl 12 til Keflavíkur til að taka þátt í öryggisæfingu í flugráni. Fékk að dúsa þarna í flugsæti með hausinn niður að hnjám í næstumþví 3 tíma, úff þetta var erfitt, haha. Hlustað var á arabíska tónlist og það var lesið upp úr Kóraninum fyrir okkur, hryðjuverkamennirnir “ægilegu” löbbuðu fram og aftur og görguðu og börðu í allt með síðan plastbyssur. Mjög athygglisvert allt saman. Svo fengum við smá matarpásu og mikið var gott að fá aðeins að rétta úr sér, var orðin verulega stíf í hálsi og öxlum. Já þetta var ekki löng pása og það var bara gos og samlokur með salatsulli á, þannig að ég fékk mér ekki neitt. Ein flugfreyjan var “drepin” og einhver “fékk” hjartaáfall, miklir leikarar þarna á ferð. Ríkisstjórnini var slétt sama um okkur söðu þessir menn sem voru svo greinilega ekki arabar, hihi. Svo kom að því að sérsveiti braut inn með látum og áfram urðurm við að horfa niður. Okkur var svo hleypt útúr vélini og áttum að hlaupa út með hendurnar aftaná höfði, ég var svo nærriþví dottin í stiganum niður. Úti voru vopnaðir sérsveitamenn allstaðar og svo urðum við að leggjast á magan á flugbrautina, það var slatta kallt. Síðan kom lögreglumaður og strappaði saman hendurnar fyrir aftan bak og vá hvað hann herti mikið hjá mér. Síðan var mér fleigt inn í strætó og þá spurði ég einn manninn hvort þetta ætti að vera svona svakalega strekkt og hann yrti ekki á mig. Keyrt var með okkur í flugskyli og þar átti að leita á okkur, lögreglumaðurinn sem leiddi mig inn fór svo að pæla í þessum höndum mínum, og þá var ég orðin blá og fann ekki fyrir höndunum. Stelpan sem ætlaði að leita á mér spurði svo hvort ég gæti lyft höndunum, hahaha bara svakalega föst fyrir aftan bak. Það tókst svo með herkjum og töng ða losa draslið af mér og má ég var hvít svo rauð og svo blá og dökkblá á nöglunum, þá kom náladofi og svona skemmtilegt. Svo fengum við upplysingar um að æfingin hafði gengið vel og svona ymislegt auka. En vá mig langar að sjá upptökurnar frá æfinguni. Það var síðan alveg rosalega gott að komast heim að borða og í heita sturtu.
Í dag var ég bara í vinnuni, skemmtilega stíf í herðum og hálsi en það liðkast á einhverjum dögum, var reyndar að drepast í vinstri hendini en það reddast þar sem ég nota mest hægri í vinnuni. Er svo bara búin að vera heima í rólegheitum, reyna að læra, sinna EK en Einar er á Skrekki.
Á morgun fæ ég nyja bílinn minn afhendan og verður það eflaust gaman, ég vona bara að ég fái ekki gallað eintak í þetta skiptið og að þessi bíll muni reynast okkur vel.
Helgin fer eflaust mest í að læra og kanski baka eithvað, en það er mjög stutt í afmæli núna og Elías Karl getur næstumþví ekki beðið.
Þetta er nú orðin meiri langavitleysan og ætla ég ekki að pynta ykkur með þessu lengur.
miðvikudagur, nóvember 14, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það er ekkert smávægilegt ævintýri!!! En til lukku með nýja kaggann. Einn daginn mun ég líka vera á glænýjum úr kassanum :-)
Vonandi tekst okkur að halda smá spilakvöld þegar það lægir í skólanum og svona.
Skrifa ummæli