Já þá er hann litli Elías Karl orðinn 5 ára gamall, og vá hvað hann er ánægður. Hann var alveg ofsalega glaður að vakna á fimmtudaginn og vera þá orðinn 5 ára. Einar áttu nú líka afmæli sama dag en það fór nú nánast framhjá manni. EK var bara númer 1,2 og 3. Mikil veisla var í dag og mikið af pökkum, kökum og gestum. Elías Karl er alveg hæðst ánægður með þetta allt saman, og verður gerð verslunarferð á morgun að kaupa batterí í þetta allt saman og ég er búin að byggja saman, legó og pleymó og allskonar. Svo er það nú ég sem á afmæli á morgun, já ég er víst að verða 24 ára en ég held enþá að ég sé ekki nema 20 en sálin er nú stundum eithvað eldri en það, hihi. Já þetta er svona, brjálað að gera alltaf í nóvember hér á bæ.
Annars styttist óðum í desember og próf og jólakraut og mig er farið að hlakka til að vera búin í prófum og er þá komin í "jólafrí", verð sammt að vinna en það er allt í lagi. Bara gott að þurfa ekki að læra á kvöldin, sem ég verð nú heldurbetur að taka mig á í. Er ekki einhver til í ða festa allt námsefnið inn í heusinn á mér með hugboði eða usb tengi, ja ef það væri nú hægt.
laugardagur, nóvember 24, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hæ Skvís!
Innilega til hamingju með daginn :-) vonandi nýturu hans! Gangi þér einnig vel með próflesturinn. Kannski getum við nú hist eftir törnina hjá okkur?
Ég verð nú líka að óska Einari til hamingju með daginn en ég er búin að setja kveðju hjá Elíasi Karli, skilar kannski kveðjunni til Einars ;)
Kveðja,
Eva.
Skrifa ummæli