miðvikudagur, desember 05, 2007

jólin eru að koma, eftir aðeins 19 daga

Já jólin eru að koma og maður er sko sannalega farinn að finna fyrir því. Svo fallegt að sjá allar seriurnar allstaðar og jólakraut. Hér á heimilinu er það þessi 5 ára sem minnir okkur á klukkustrenginn á hverjum morgni og það er svo gaman að fá pakka í 24 daga í röð og enda það svo á pakka hátíð. Ég kláraði jólakortin áðan og svo þarf ég bara að koma þeim í póst. Á bara eftir að kaupa 3 jólagjafir, þannig að hérna er allt á góðu róli. Búin að baka 2 tegundir af smákökum og gera 3 tegundir af komfekti. Búin með eitt jólapróg og líka búin að falla í því, já þetta er svona. Á 2 próf eftir og ég rétt vona að ég nái þeim, en ég er líka búin að sjá það að ég get ekki tekið svona mikið nám með 100% vinnu og heimili. Það er einfaldlega ekki holt, hvorki fyrir mig né aðra á heimilinu. En maður verður að halda áfram en kanski aðeins minna næst og þá tekur þetta aðeins lengri tíma. Mig langar bara ægilega að komast í smá frí og bara njóta þess að vera til, en ég fæ vist ekkert frí á næstuni, nema bara rétt yfir hátíðardagana.
Já svona er þetta nú allt saman, vonandi gengur ykkur hinum vel í prófunum og líka með jólaundirbúninginn.

1 ummæli:

Eva sagði...

Varðandi námið, það er hrikalega erfitt að taka svona mikið nám, vera með fjölskyldu og vinna! Ég er nú bara með Gunna og vinna en það er aldeilis hellingur!!!

Við sjáum annars til með prófin :-) kannski verðum við bara samfara í F-inu...

Hrikalegur dugnaður er samt í þér!

Ég á allt eftir, reyndar gerði ég 3 sortir af smákökum í dag/kvöld, gerði eina gerð af maregns toppum, keypti jólakortin og svona :p þannig að ég er aðeins búin að stelast fyrir próflok!

Mikið verður samt gott að komast í frí, fer ég kannski að sjá vini og fjölskyldu meir!