fimmtudagur, desember 13, 2007

Prófin búin, brjálað veður og jólin að koma

Já ég var í mínu síðasta prófi í dag og mikið er gott að vera komin í "jólafrí", ég náði hagfræðini og er bara sátt en ég veit ekki með prófið í dag. Annars er það búið að vera ansi brjálað veður hérna, það er búið að fara í 45metra á sek. Annsi margt búið að skemmast og fjúka. Austurbæjarskóli lenti illa í því í nótt þegar það fauk um 300 fm af þakinu af. Já fyrir utan innbrotið þar síðustu helgi, hvað er næst. Er ekki allt þegar þrennt er?? Sá það þegar ég kom heim að það er brotin grein á jólatrénu útí garði eftir veðrið. Svo er nú búið að spá öðru ein í kvöld og er það þá í 3 skipti í þessari viku.
En núna snjóar og það er ekkert smá flott að horfa á snjóinn falla hérna fyrir utan, sérstaklega svona upplýst frá kastaranum sem við settum út.
Elías Karl er hin hressasti sérstaklega með þessa jólasveina sem kíkja inn á nóttini. Við ætlum svo að skella okkur í jólatráaleiðangur á laugardaginn ef veðrið verður til friðs.

1 ummæli:

Eva sagði...

Það er ekkert smávegis! EN ég verð að fara koma í heimsókn og sjá huggulegheitin hjá ykkur :)