Já það eru að koma jól og bara eftir 3 daga, en hér er allt tilbúið, steikin inní ískáp, tréð útá svölum og allar gjafir tilbúnar. Það er búið að vera mjög mikið að gera í vinnuni og leit borðið mitt ekki út fyrir að ég væri að fara í frí í dag, en það varð bara að bíða þar til í næstu viku, var ekki að meika að vinna frameftir svona vitandi að ég væri að fara í "frí". Fengum veglegar gjafir frá Fjárvaki og Icelandair Group og svo var ég í leunaviðtali í dag og get ekki sagt neitt nema að ég er mjög sátt í dag (laun eru víst eithvað sem ekki má tala um). Elías Karl er alveg ofur spenntur núna og á alveg í fullu fangi með að vera þægur og góður, getur stundum verið erfitt. Mig hlakkar bara til að slappa af með tærnar upp í loft eins mikið og ég mögulega get. Ætlum á Laugaveginn eins og venjulega á þorláks og svo í grautinn hjá mömmu í hádeginu á aðfangadag, koma við í kirkjugarðinum og fara heim að elda og bað og allt það. Það alveg hrúgast inn gjafirnar hér á bæ og sumum klæjar í puttana þeim langar svo að opna. Ég tók mér rúnt í gær með gjafir og kort og ætlaði ekki að vera lengi en ég var ekki komin heim fyrr en eftir miðnæti, þurfti aðeins að kíkja inn á svo mörgum stöðum, gaman að sjá aðeins framaní fólk sem maður hittir sjadan og talar mest við á msn. Mér gékk nú ekkert allt of vel íprófunum en ég náði rekstrarhagfræðini með style, meira ætla ég ekkert að tjá mig um þessi mál. Tek svo bara eitt fag eftir áramót en það er alveg nóg á meðan það er svona mikið að gera. Áramótin verða svo að vana í breiðholtinu og verður Ísold hjá okkur þá. Reikna sv með að við verðum bara róleg eftir miðnæti heima, byrja nytt ár útsofin. Annars er bara fínt að frétta meður er þreyttur eftir törnina undanfarnar vikur og hlakka til að sofa og slappa af, borða góðan mat og allt sem því fylgir. Þetta verður mitt síðasta blogg ári en ég ætla að smella inn smá annál fyrir árið 2007 fljótlega.
Þannig að ég kveð að sinni og óska öllum gleðilegra jóla.
föstudagur, desember 21, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gleðileg jól Karitas og strákarnir auðvitað! Þetta er búið að vera ansi viðburðarríkt ár hjá ykkur og gaman að fá að vera með.
Með jólakveðju,
Eva og Gunnar.
Skrifa ummæli