Annáll 2007
Janúar
Var rólegur mánuður með veikindum og því tilheyrandi. Elías Karl veikur og ég á pensilíni. Hélt Tupperware kynningu og þá komu góðir gestir.

Febrúar
Byrjuðum mánuðinn á London ferð og það var alveg æðislega gaman, gistum hjá Heiðu og Bjössa. Byrjuðum að undirbúa brúðkaupið. Stefanía varð 16 ára og lögleg að læra á bíl. Svo héldu veikindin áfram og meiriháttar pensilínkúrar.

Mars
Við Elías Karl fórum í sumarbústað með Þóru og krökkunum, voðalega notarleg helgi hjá okkur þar. Fór á “æðislega skemmtilegt” námskeið með skattinum á Grand hótel og þar lærði ég allskona skattamál sem tengjast framtalinu. Elías Karl eignaðist fiska sín fyrstu gæludyr. Ísold varð 15 ára þann 29 mars.

Apríl
Bergdís lilta syss fermdist og svo fórum við Einar og Elías Karl í sumarbústað yfir páskana á Signýjarstöðum. Áttum saman notarlega daga þar í 22fm bústað, fengum góða gesti þangað einn daginn. Fór í atvinnuviðtal hjá Fjárvaki og svo sagði ég upp störfum hjá RSK.

Mai
Byrjaði mánuðinn í prófum og gékk vel. Vann minn síðasta dag hjá RSK þann 11 mai og kvaddi fólkið með kökum og svona gotti. Alþingiskosningar og Listahátíð, fórum í bæinn að sjá Risessuna og skemmdir eftir pabba hennar. Byrjaði hjá Fjárvaki 14 mai. Kíktum í Kotið hjá ömmu og afa (Hellu) Byrjaði að vinna aðeins í garðinum og smá svona sumarfílingur að byrja.

Júní
Fórum í vorferð með RSK og það var alveg voðalega gaman.Einar fór til Frakklands. Fórum í bæinn á 17 júni og það var voða fínt veður ótrúlegt en satt. Andri Þór var hjá okkur í pössun 17-23 og strákarnir skemmtu sér vel saman. Fórum í danskennslu og byrjuðum að vinna í lokaundirbúningi fyrir brúðkaupið. Einar var steggjaður og ég gæsuð, geðveikt stuð það sko.

Júlí
Kari, Kjell, Vegard, Helene, André, Sigrid, farmor og mormor komu, æðislegt að fá þau hingað til landsinns. Fórum til Eyja 5 júlí og giftum okkur þann 7 júlí á afmælisdegi pabba. Þetta var æðislegur dagur í alla staði. Vorum svo bara í góðu veðri og rólegheitum í Eyjuni fögru. Komum upp á land aftur 10 júlí og Norðmennirnir fóru út aftir þann 11. Fórum á ættarmót Skuldara og það var alveg voðalega gaman, bara hresst fólk þar á ferð. Gæsaði Þóru vinkonu 28 júlí og var það bara fjör.

Ágúst
1 ágúst voru liðin 12 ár frá því hún Eva vinkona druknaði. Við familían fórum með Þóru, Guðjóni og börnum í sumarbúsaðinn þeirra og áttum æðislega helgi þar. Fórum á Gay Pride hátíðina. Þóra tengdó mjaðmagrindarbrotnaði rétt áður en hún ætlaði út til Kanada. Skokkaði 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu og náði því á 68,28 min og bara sátt með þann árángur miðað við form. Þóra og Guðjón létu pússa sig sama þann sama dag og var frábær athöfn og veisla þarna í Kjósini. Einar og Ísold fóru til London og áttu góða daga þar. Harpa og Þór eignuðust eina alveg ofur prinsessu alger dúlla þar á ferð.

September
Fórum til Boston með vinnuni og það var bara ógeðslega gaman hjá okkur, versluðum, skoðuðum alveg fullt og nutum þess að vera þarna úti í æsðilegu veðri og þvælast. Afi Gústi varð 70 og við fórum í veislu í tilefni þess á Sögu, áttum notarlegt kvöld þar. Elías Karl byrjaði að æfa frjálsar hjá Ármanni.

Október
Kolbrún Soffía var skírð þann 6 október og ber það bara mjög vel. 10 okt voru 3 ár liðinn síðan hann Tóti minn dó, tíminn líður svo svakalega hratt. Mamma og Hermann giftu sig 12 okt. Ég fór í hálskyrtlatöku þann 16 okt og það var sko ekki gaman, var ógelsðega sár eftir það og ekkert gékk mér aðkoma niður vökva og hvað þá mat, gerði mitt besta til aðkoma niður verkjalyfjum en það gékk svo ekkert og ég var lögð inn í sólahring með næringu í æð. Berdís 14 ára og Davitt (sos barnið okkar) 9 ára. Héldum Halloween party þann 27 okt og var það bara vel heppnað og skemmtilegt, góð mæting og flottir búningar.

Nóvember
Tilþrif 2007 í vinnuni og var það alveg ágætt nema að ég var enþá að jafna mig eftir hálskyrtlatökuna. Skipti um bíl og fékk mér glænyja Toyota Avensis, Elías Karl valdi litinn þannig að hann á alveg helling í bílnum. Elías Karl, Einar og ég áttum afmæli og var haldið uppá barnaafmælið með kökum og góðgæti. Byrjað að læra fyrir próf.

Desember
Próf og próf og próf, jólahlaðborð, jólalest cocacola, aðventa, jólaskraut, jólaljós, jólatréferð, komfektgerð, smákökubakstur, piparkökubakstur, piparkökumálun, jólasveinar, jóladagatal, skór í glugga, jólalög, jólamatur, jóla, jóla, jóla. Löng jól í ár og við tímalega búin með allt, voðalega notarlegt. Mamma afmæli á þorláksmessu, Laugarvegsröllt, skreyta jólatré. Aðfangadagur möndlugrautur hjá mömmu, innlit í kirkjugarðinum, heim að elda og baða. Notarlegt kvöld heima með mat, pökkum, spenningi í EK, jólakortin, komfekt og gaman. Vinna 1 og ½ dag milli jól og nýárs, en ég var svo kvefuð og fór á syklalyf og EK fékk í eyrun og er á pensilíni. Elías Karl stóð sig eins og hetja á innanfélagsmóti í frjálsum 29. des. Gamlársdagur vinna til hádegis, kvöldið í Þverárselinu, góður matur, skaupið, flugeldar og rosa fjör. Komum heim kl 01.30 og voru allir voðalega þreyttir og EK sofnaði í bílnum á leiðini heim.

Gleðilegt ár.

2 ummæli:
Þetta hefur verið mjög viðburðarríkt ár hjá þér og mjög gaman að fá að taka þátt í því með þér.
Hlakka til að fá að vera með á næstu árum :-)
Góður pistill hjá þer elskan og gaman að þú skulir muna eftir okkur :) ! Verðum að hittast oftar á nýju ári
knús
Harpa
Skrifa ummæli