mánudagur, janúar 07, 2008
Breyta breyta breyta
já ég er sko komin í ham, keyptum nytt baðkar áðan og núna er ég á fullu að leita að hinni fullkomnu baðinnréttingu. Erum búin að finna flottan vask og núna er bara framhaldið að safna saman í heilt baðherbergi útí bílskúr og svo þegar það er komið munum við byrja ða brjóta og bramla og gera allt nytt hjá okkur. Já þráðurinn kviknaði í gær þegar ég var að hjálpa Kristbjörgu að tengja vask. Það bara er svo gaman að gera svona nytt og vinna í þessu öllu. Skráði okkur reyndar líka í Hæðin á stöð 2, en það verður bara að koma í ljós hvort maður komist í það. Já maður getur verið svoldið klikkaður. Akkurat núna er ég bara með hugann við baðherbergið og á glænytt baðkar útí bílskúr. Annars er bara allt í góðum gír og heil vinnuvika núna og alveg nóg að gera. Er líka farin að pæla mikið í sumrinu og hvernig er best að haga því og hvort maður komist kanski til Florida, veit ekki hvenar ég fæ sumarfrí, en ég verð bara að treysta á að ég fái þessar 2 vikur sem við ætlum að vera í Tromsö, þar sem við erum löngu búin að kaupa miðana. Já svona er þá staðan á okkur í dag.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Bara brjálað að gera hjá ykkur eins og oft áður :) Ég vona að þið komist í þáttinn, verður ekkert smá gaman að fá að fylgjast með ef þið komist inn!!!
Skrifa ummæli