mánudagur, janúar 14, 2008
brr kallt úti
Það kom í ljós að við getum ekki verið með í Hæðini þar sem við erum með barn. En útaf öryggisreglum þá meiga börn ekki vera þarna og við erum nú alls ekki tilbúin að láta gullmolann frá okkur í 6 vikur. Svo heyrði ég líka aðeins mera um þátinn og þá var það ekki jafn spennandi, þar sem maður á ekki að flísaleggja sjálfur og parketleggja og svona. Þannig að orkan verður bara geymd þar til við rífum allt út úr baðherberginu hérna heima. Allt gott að frétta, Þóra og Obba lentu á Kefl í nótt eftir yndislega dvöl í Kanada og ég veit ekki betur en að ferðin hafi verið æðisleg. Það er nóg að gera í vinnuni núna þar sem það er verið að gera upp síðasta ár. Skráning er hafin í skólann og er ég ekki alveg búin að gera upp við mig hvað ég ætla að taka. Ég hef þessa vikuna til að gera það upp við mig. Svo er árshátíð Icelandair Group þann 26 janúar í Laugardalshöllini. Það er Las Vegas þema, spilasalir, giftingarkapella og fjör. Verður eflaust voða gaman. Annars bara allt í gúddí og ís kallt úti.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli