föstudagur, janúar 18, 2008
Barnatíminn
Hvað varð um gamla góða barnatímann eins og Babar, Mæja bífluga, Strumparnir, Barbapabbi, Tommi og Jenny og allt þetta fallega. Jú ég veit að það er ofbeldi í T&J en það er sammt aðeins öðruvísi. Ég sit hérna og sonur minn er ða horfa á barnatímann og það eru bara bardagar, vopn og endalaust ofbeldi. Það liggur við að barn hafi meira gagn af því að horfa á ofbeldisfullar bíómyndir þar sem fólk deyr því þá sjá þau afleiðingarnar, en ekki þessa teinimyndakalla sem vakna aftur og aftur til lífsinns. Það snysst 98% um ofbeldi og bardaga í þessum barnatíma og það held ég að sé ekki góð þróun. Afhverju ekki bara sleppa þessum þáttum og vera mei eina fallega disney mynd í staðin, í barnatímanum. Fyndna við þetta er að maður kveikir á barnatímanum og fer að gera eithvað annað á meðan barnið hrofir á , en svo koma fréttir frá Írak eða eithvað í fréttunum og þá segir meður við barnið: Nei ekki horfa þetta er ljótt! og tekur fyrir augun á því. En þar er maður að horfa á staðreyndir í þessum heimi sem börnin eiga ekki að sjá. En er ekki barnatíminn með neinn boðskap? Er bara allt í lagi með þetta ofbeldi? Hvað finnst ykkur?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Sammála þær eru rosalegar sumar teiknimyndirnar. Sem betur fer eru flestar meinlausar sem Óskar horfir á en ég horfði á eina með honum um daginn sem var bara virkilega scary. Menn að saxa hvern annann með sverði. Sem betur fer er hér sér rás fyrir yngri krakkana sem Ísabella horfir á. Þar er til dæmis Babar og Dora the explorer og sniðugir fæðsluþættir. Verst að þau auðvitað rífast stanslaust um hvaða stöð eigi að horfa á, garg!
Tek alveg undir þetta með þér Karitas! Ég er ekki að skilja barnaefnið sem er vinsælt í dag. Spurning að maður reyni að fjárfesta í þessu gamla góða og eigi til síðari ára?
Sammála - skil ekki barnaefni í dag. Vantar alveg dodda á gula og rauða bílnum og bleika partusinn, tuskubrúðurnar og regnbogabirtu og fleiri :)
Já, Harpa einmitt... Mundi ekki alveg eftir neinu en svo eru Kærleiksbirnirnir og Snorkarnir :)
Skrifa ummæli