fimmtudagur, janúar 24, 2008

Má ég kanski vera borgarstjóri næst??

Guð, hvað ég er orðin þreytt á þessum sandkassaleik í þessari borgarstjórn. Meina; 3 borgarstjórar á einu kjörtímabili og svo hefur maður ekki séð neina stefnuskrá, allavega ekki hjá Degi og co., en hann segir að þau hafa lagt einhverjar 8 milljónir í leikskólamálin, en afhverju er þá ennþá verið að senda börn heim útaf manneklu, og afhverju hækkuðu þá leikskólagjöldin um áramótin. Það ætti bara að taka þessa menn og flengja þá, senda þá heim til mömmu sinnar og fá eithvað nýtt blóð í þessa blessuðu borgarstjórn. Kjósa upp á nýtt, ekki spurning.

Engin ummæli: