föstudagur, febrúar 01, 2008

Ég er góður viðskiptamaður...

... var það reyndar áður líka. Málið er reyndar að GULL debetkortið mitt rann út í gær og ég skrapp í bankann í hádeginu og náði í nyja kortið sem er PLATINUM. Mér fannst þetta mjög merkilegt þar sem þetta er nú bara debetkort. Á netinu finn ég engan mun á þessum kortun þar sem bæði eru fyrir góða viðskiptamenn 18 ára og eldri. Ég veit að það er munur á gull og platinum visakorti, en ég veit ekkert með þetta kort. Ég er þá bara svona extra góð, haha, borga allavega nógu &$%&%$%//&$ mikið af vöxtum í þennan blessaða banka.
Já þetta er fjör.
Annars bara allt í gúddí, helgin gengin í garð og rólegheit í kvöld.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mitt debetkort er bara blátt :(

Eva sagði...

Já, það er ekkert annað :p Er ekki auðveldara að fá yfirdráttarheimild og fleira því um líkt? Annars veit ég ekki muninn á þessum debetkortum... :p

harpan sagði...

mitt debitkort er bara líka blátt......
kvittkvitt