sunnudagur, febrúar 10, 2008

Fyrsta bíó ferðin í langan tíma...

... Við Einar skelltum okkur í bíó saman í kvöld á myndina Untraceable, hörkumynd bara og bara gaman að fara í bíló. Við fórum síðast saman (á annað en barnamynd) á Spidermann í Regnboganum árið 2002, já það er ansi langt síðan. En allavega þá kostaði 900 kr miðinn sem bara sorry mér finnst frekar hátt verð, og svo komum við inn í þessa líka SVÍNASTÍUNA. Mér blöskraði að sjá gólfin þarna, popp útum allt og að minsta kosti 2-3 tómir popppokar, 1-2 gosglös, allskonar nammipappir fyrir utan allt poppið undir HVERJU einasta sæti. Þvílíkur viðbjóður, ég borgaði fyrir það að fá að sitja í ruslahaug og horfa á góða mynd með lélegu hljóðkerfi. Íslendingar eru bévítans sóðar og hanan nú. Við hentum okkar rusli eftir myndina og þarna stóðu þessir líka fínum TÓMU rusladallar. Já ég bara varð að tjá mig aðeins um þetta, ef síminn minn hefði ekki verið batteríslaus hefði mynd fylgt þessu. Íjuhhh, hrollur.

2 ummæli:

Eva sagði...

Ég fór síðast á The Simpsons í fyrra. Það var svosem ekki slæmt þá en kannski munaði það að starfsmenn voru búnir að fara yfir salinn áður en við fengum að fara inn.

Annars er ástandið alveg ótrúlegt stundum.

Enda ef ég fer í bíó þá vanda ég valið og fer jafnvel út í að fara í VIP sal bara til að hafa þetta þess virði!!!

En myndin hljómar annars ansi vel af þér að dæma og imdb.com ;)

Nafnlaus sagði...

Ég man nú ekki hvenær ég fór síðast í bíó en það er MJÖG langt síðan, mig minnir að það hafi bara kostað 800kr þá....... shitt hvað þetta er orðið dýrt, svo langar manni kannski í popp og kók með myndinni og sumir kannski þurfa að borga barnapíunni 500kr á tímann þannig að fyrir par er þetta kannski 5000kjell fyrir eina bíó ferð - finnst þetta hreinlega bara ekki mönnum bjóðandi.....
Þetta er ástæðan að ég fer ekki oft í bíó....

Kv Harpan