laugardagur, febrúar 16, 2008

Ókepis spítalaheimsókn, jei

Allt gott að frétta hér, er búin að vinna og vinna og svo loksinns hafði ég tíma til að læra í gær, hef ekki verið dugleg hingað til :/ En allavega þá var ég búin að hlamma mér niður með bækurnar og komin vel af stað þegar Elías Karl fer að öskra og gráta. Hann hefur verið að kvarta yfir auganu sínu eftir að hann var lasinn síðast, en núna var kastið mun verra og við brunuðum uppá slysó, eins og það er nú alltaf gaman að koma þangað eða þannig. Biðum í 1,5 tíma og svo kom doksi, hann sá nú ekkert þannig að næsta skref er að fara með herrann til augnlæknis. En það sem mér fannst alger snilld við þetta allt er að maður þarf ekki lengur að borga fyrir börn, nema þau fari til sérfræðings eða í myndatöku. Hefði mátt koma á fyrir 5 árum síðan en ég kvarta ekki að þurfa ekki lengur að borga. EK var líka alsæll með sín tatto sem hann fékk í verðlaun. Síðan fór kvöldið allt í lærdóm.

1 ummæli:

Eva sagði...

Ekki gaman að heyra með drenginn en flott mál með gjöldin :D

Vonangi gekk lærdómurinn vel!