Já ég fékk morgunmat í rúmið í morgun og heimtaði svo að fá að liggja í leti í allan dag. Las og svaf til skiptis til að verða 16, þetta hefur bara ekki gerst í rúm 5 ár. Takk fyrir en þetta var alveg æðislegt, þvílík leti. En hann Einar ætlaði að bjóða mér út að borða og í bíó, en svo er víst ekki farið að syna myndina og hann hafði ekki vit á þvíð að panta borð, en hann meinar vel, hihi. Förum bara seinna. Tók reyndar smá syrpu í herberginu hjá EK og tók vel til, martröð hvað börn í dag eiga mikið af dóti og leika sér ekki með helminginn. Núna er ég bara að bíða eftir að fá djúsí hamborgara frá american style, mmmmm. Annars bara allt gott að frétta, námið gengur bara vel og nóg að gera í vinnuni eins og alltaf. Hlakka svo til páskana að komast í frí í alveg 4 daga :)
Já annars horfði ég á þetta lokadæmi í Laugardagslögunum, loksinns er þetta búið, meiri langavitleysan þar á ferð. En mér finnst eginlega bara gott að Eurobandið komst áfram, hey hey hóhó alveg ágætis lag en ég bara held að það egi ekki heima í þessari keppni, en það er nú bra mín skoðun. Jæja best að hætta og fara að slafra í sig borgarann og friðarkartöflurnar.
sunnudagur, febrúar 24, 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Mikið varstu heppin!
Skrifa ummæli