mánudagur, mars 03, 2008

Færsla handa Evu...

... þar sem hún virðist vera sú eina sem les hérna, eða svona nánast. Já núna er ég búin að sjá aðeins meira af landinu, skellti mér niður á Húsavík um helgina, við EK tókum flugið til Akureyrar og pabbi sótti okkur þar. Hann sonur minn hafði ekki mikla trú á þessari flugvél sem við sátum í, en það fór allt að titra og hrisstast þegar við lækkuðum flug fyrir norðan og EK kallar hátt við brotnum við brotnum ég er svo hræddur. Ekki mjög traustvekjandi fyrir hin börnin í vélini. Svo tók við klukkutíma keyrsla til Húsavíkur og Ek var sko ekkert sáttur við að þurfa að sitja svona lengi í bíl. Við tók bara rólegheit og ég sofnaði báða dagana fyriri kl 22. Það gerist sko ekki offt, sveitaloftið eithvað að hafa róandi áhrif. Pabbi syndi okkur svo bæinn þarna og við fórum í fjárhúsið að gefa og krakkarnir hoppuðu í heyinu, svaka stuð. Fylgdi manni þessi svaka fnikur þegar út var komið. Annars var bara slappað af, Ek lék sér við strákana og borðaður góður matur. Flugið var fínt heim í dag og gott að vera kominn heim. Tók því ekki fyrir mig að fara að vinna þannig að ég fór og þreyf bílinn, loksins og er hann aftur orðinn dökk grár og glansandi en ekki salt ljós grár. En já ætla að láta þetta gott í bili, dugleg að kvitta þið sem komið hér að lesa.

2 ummæli:

Eva sagði...

Nei, færsla handa mér :-) ekki leiðinlegt það!

En þetta hefur verið heldur betur ævintýri hjá ykkur. Sá á myndunum hjá EK að hann hefur skemmt sér konunglega. Mikið hefði ég þó viljað vera nálægt þegar hann sagði þetta í vélinni!!!

Unknown sagði...

Ég les alltaf, bara ekki nógu dugleg að kvitta, skal taka mig á! Ætla að kíkja á sveitamyndirnar núna.