fimmtudagur, mars 06, 2008

karlmennogkrabbamein.is

já þessi vefur er tær snilld, ég alveg hló mig máttlausa þegar gæinn var að skoða á sér eistun. Það er sammt alveg merkilegt hvað það þarf að gera hliti fyndna til að karlmenn fari að skoða. Já karlmenn fá þessa fínu síðu með snilldar teiknimyndafígúru, en við konurnar vitum það bara að við þurfum að fara í krabbaskoðun frá 20 ára og sumir fá smá kort sent heim og þær sem búa útá landi fá auglysingu á rúv og að þessa og hina daga er krabbameinsleit í hinum og þessum bæjarfélögum. Flestar konur fara í þessar skoðanir reikna ég með, en ég efast um að karlmenn fari eithvað að láta tékka á sér allavega ekki þeir ungu. Eða ég tel mig vissa um að það er mun meira hlutfall kvenna sem láta skoða sig, sama hverslu leiðinlegt. En ég segi bara húrra fyrir þessari síðu og bendi öllum á að skoða hana.

3 ummæli:

Eva sagði...

Þetta er ansi áhugavert....

Nafnlaus sagði...

Bara að kvitta fyrir mig! :)

harpan sagði...

hey ég kíki hér inn reglulega líka..... er bara öllum stundum núna að læra... lofa að vera duglegri að kvitta þegar þessi /#)(&$(2 ritgerð verður búin :)
knús Harpan